Ipad Air – Öflugri en nokkru sinni fyrr, með M4-krafti og glæsilegri skjástærð
iPad Air er létt og fjölhæf spjaldtölva sem hentar vel í skapandi verkefni, nám og vinnu. M4-kubburinn sér um hraðann svo allt flæðir betur og Apple Intelligence gerir allt einfaldara – hvort sem þú ert að klippa myndbönd, teikna, spila eða vinna í mörgum öppum í einu.

Airpods Max 2 - Ný kynslóð af frábærum heyrnartólum.
Ný kynslóð af Airpods Max sem skilar einstaklega nákvæmu og kraftmiklu hljóði þar sem hver nóta fær að njóta sín, með dýpri bassa, náttúrulegri raddblöndu og breiðara hljóðsviði en áður. Snjallar aðgerðir eins og Adaptive Audio laga sjálfkrafa hljóð og noise cancellation að umhverfinu, á meðan Transparency og Conversation Awareness gera þér kleift að eiga eðlileg samskipti án þess að taka heyrnartólin af þér. Með Live Translation verður auðveldara en nokkru sinni að tala við fólk á mismunandi tungumálum og persónuleg hljóðstilling tryggir fullkomna upplifun hvar sem þú ert, hvort sem þú ert að hlusta, horfa eða spila.
Einstök litadýrð með MacBook Neo. Fjórir glæsilegir litir. Ein endingargóð hönnun.
MacBook Neo er létt og sterk tölva sem fylgir þér í skóla, vinnu og allt þar á milli. Þú færð allt að 16 klst. rafhlöðuendingu, bjartan 13" Liquid Retina skjá og öfluga A18 Pro-flögu sem heldur öllu gangandi – hvort sem þú ert að læra, vinna skapa eða slaka á.
256GB er með Magic lyklaborði 512GB er með Magic lyklaborði með Touch ID
Öflug og fyrirferðarlítil hraðhleðsla með allt að 60W afli fyrir fjölbreytt úrval USB-C tækja.
Öflugur og fyrirferðarlítill hleðslukubbur sem aðlagar afköstin sjálfkrafa og skilar allt að 60W hámarksafli. Dynamic Power tæknin sameinar hraðvirka hleðslu og netta hönnun sem gerir hleðslutækið tilvalið heima, á skrifstofunni eða á ferðinni. Fyrir hraðhleðslu má nota þennan Dynamic Power hleðslukubb með iPhone 17, iPhone 17 Pro og iPhone 17 Pro Max (allt að 50% hleðsla á aðeins 20 mínútum) eða iPhone Air (allt að 50% hleðsla á 30 mínútum). Einnig má nota hann með 11" iPad Pro (allt að 50% hleðsla á 30 mínútum) eða 13" iPad Pro (allt að 50% hleðsla á 35 mínútum). Hleðslukubburinn er samhæfur við USB-C tæki og hentar fjölbreyttu úrvali Apple tækja sem þurfa allt að 60W afl, með viðeigandi snúru. Hleðslusnúra er seld sér.
Njóttu þess að nýta skjáinn enn betur með Apple Pencil.
Apple Pencil tengist og hleðst á einfaldan hátt með USB-C snúru og festist með segli á hlið iPad þegar hann er ekki í notkun. Hann býður upp á náttúrulega og nákvæma upplifun við að skrifa, teikna og vinna beint á skjánum, líkt og með hefðbundnum blýanti á pappír. Nákvæm skynjun á hreyfingum og halla gerir þér kleift að stjórna línum, skyggingum og öðrum myndrænum áhrifum á þægilegan hátt.