Framúrskarandi hljóð, öflug hljóðeinangrun og einstök þægindi sem gera hverja hlustun að betri upplifun.
Endurbætt hönnun sameinar fágað útlit og einstök þægindi með mjúkri, stillanlegri höfuðspöng og sporöskjulaga eyrnaskálum sem falla vel að eyrunum.
TrueSpatial™ tækni skilar framúrskarandi hljóðupplifun á meðan QuietControl™ hljóðeinangrun hjálpar þér að sökkva þér í tónlistina. Veldu á milli mismunandi hlustunarstillinga eftir aðstæðum, þar á meðal Quiet, Aware, Immersion og Cinema og njóttu jafnframt skýrra símtala með hávaðasíun.
Rafhlaðan endist í allt að 24 klukkustundir, eða í allt að 18 klukkustundir með Immersive Audio virku og 15 mínútna hraðhleðsla veitir allt að 2,5 klukkustunda hlustun. USB-tenging býður upp á taplaust (e. lossless) hljóð og gerir þér jafnframt kleift að hlaða heyrnartólin á meðan þú hlustar.
Notendavænir stjórnhnappar á eyrnaskálunum gera svo auðvelt að stjórna tónlist, hljóðstyrk, símtölum og hlustunarstillingum.
eða 9.118 kr./mán í 6 mánuði og engin útborgun*