Stafrænn myndarammi frá Denver sem býður upp á meiri sveigjanleika. Þú stjórnar því hvaða minningar þú sýnir á þínum ramma hverju sinni.
10" ramminn frá Denver keyrir á Frameo hugbúnaðinum sem gerir þér auðvelt að senda myndir á rammann. Auðvelt er sem dæmi að senda mynd á marga ramma í einu, svo ömmur og afar geta fengið nýja mynd í rammann án þess að þú sért í heimsókn.
Sætir Tulipop lampar sem lífga upp á heimilið Lamparnir eru með LED lýsingu sem þýðir að ekki þarf að skipta um peru í þeim en lýsingin á að endast í mörg ár. Í þeim er minni straumur en venjulega og því nota þeir minna rafmagn og hitna ekki.
Uppfærðu hefðbundið sjónvarp með nýjustu útgáfu af Xiaomi TV Box S. Þetta öfluga Android TV tæki býður upp á hraða og einfalda notkun, hámarksafþreyingu og stuðning við helstu streymisveitur á borð við Netflix, YouTube, Disney+ og fleiri.
Apple AirTag 2gen - öryggi og einfaldleiki í einu litlu tæki.
Apple AirTag (2. gen) hjálpar þér að halda utan um lykla, veski, töskur og aðra mikilvæga hluti á einfaldan og öruggan hátt. Með nákvæmri staðsetningu í gegnum Find My appið geturðu fljótt fundið það sem þú ert að leita að, hvort sem það er heima eða á ferðalagi. AirTag er nettur, endingargóður og fullkominn fyrir þá sem vilja meiri yfirsýn og öryggi í daglegu lífi.
Google TV Streamer spilar uppáhalds efnið þitt í HDR 4K UHD úr uppáhalds android smáforritunum þínum án vanda. TV Streamer tengist við HDMI tengi á sjónvarpi og Wi-Fi netkerfi til að veita þér aðgang að fjölda smáforrita eins og YouTube, Netflix, Disney og fleira.
Hafðu 4G hnetuna frá Huawei með þér í ferðalagið og passaðu að allir komist netið. 4G hnetan frá Huawei er lítill og öflugur búnaður sem býr til WiFi sem að allt að 32 manns geta tengst á sama tíma.