Galaxy Watch 6 Classic – Tímalaus klassík með öflugri snjallúrstækni.
Galaxy Watch6 Classic úrið gerir svo margt sem síminn þinn gerir nema á þægilegri máta, allt beint af úlnliðnum þínum. Hlustaðu á tónlist, borgaðu fyrir innkaupin eða farðu á æfingu með einu snilldar úri á hendinni þinni. Úrið fylgir þér út allan daginn á auðveldan máta þökk sé endingargóðri rafhlöðu sem sparar orku við öll tækifæri.
Ekki missa sjónar á mikilvægustu hlutunum þínum. Festu Samsung Smart Tag 2 við lyklana þína, veskið, töskuna eða eitthvað annað sem þér þykir vænt um. Með því að nota snjallsímann geturðu auðveldlega fundið eigur þínar, jafnvel þegar þær eru ekki í augsýn.
Galaxy S25 – Ný kynslóð af hraða, skarpari myndavél og snjallari upplifun.
Galaxy S25 er besti félaginn þar sem gervigreind ásamt fyrsta flokks vélbúnaði gerir snjallsímann þinn snjallari en þig óraði fyrir. Galaxy S25 er með 6,2“ dýnamískan AMOLED skjá sem skilar 2340x1080 upplausn og allt upp í 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Þegar þú kaupir Samsung Galaxy S25 þá færðu Samsung Galaxy Buds4 með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is . Tilboðið gildir frá 12. október til 31. desember 2026.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Fáðu þér Samsung Galaxy A26 og njóttu úrvals eiginleika á frábæru verði. Með glæsilegum 6,7" FHD+ skjá verða myndbönd og leikir enn skarpari. Öflugur Exynos 1380 átta-kjarna örgjörvi tryggir hraðvirka og hnökralausa upplifun. WiFi 6 og Bluetooth 5.3 sjá til þess að þú sért alltaf í sterku sambandi. Fangaðu hvert augnablik með 50MP myndavél og njóttu 5.000mAh rafhlöðu sem endist allan daginn.