Ertu klár fyrir haustið?

Komdu þér í gírinn fyrir haustið. Afslættir af völdum vörum og Skemmtikort fylgir með á meðan birgðir endast. Allt sem þú þarft fyrir skólann, vinnu eða kósý daga heima.

Sía
Sía
Sía vörur
Loka
  • Svartur
  • Grænn
  • Blár
  • Hvítur
  • Silfur
  • Fjólublár
  • Rauður
  • Hvít
  • Svört
  • Kremlitaður
  • Svört/Gyllt
  • Grafít
  • Titanium
  • Brúnn
  • Gulur
  • Ljósbleikur
  • Dökkblár
  • Gull
  • Kopar
  • Rósagylltur
  • Gylltur
  • Grænt
  • Títaníum Grátt
  • Ljósblár
  • Títaníum Hvítt
  • Títaníum Silfur
  • Títaníum Blátt
Raða vörum eftir

Apple

Airpods Pro 3

Apple AirPods Pro (3. Gen)

Hljóðupplifun í hæsta gæðaflokki með Apple AirPods Pro (3. Gen). Öflug tækni og fáguð hönnun sameinast í heyrnartólum sem veita frábæra upplifun.
Framúrskarandi hljóðgæði
Ný og endurbætt hljóðtækni skilar dýpri bassa, skýrari miðtónum og tærari hátónum. Hvort sem þú ert að hlusta á tónlist, hlaðvörp eða taka símtöl færðu skýra og kraftmikla upplifun með Airpods Pro 3.
Virk hljóðdeyfing (Active Noise Cancellation)
Lokaðu úti utanaðkomandi hljóð og einbeittu þér að því sem skiptir máli. Fullkomið fyrir ferðalög, í vinnu eða þegar þú vilt einfaldlega njóta tónlistarinnar í friði.
Transparency Mode
Þegar þú þarft að heyra í umhverfinu skiptirðu auðveldlega yfir í Transparency Mode sem hleypir ytri hljóðum inn – án þess að taka heyrnartólin úr.
49.990 kr 39.992 kr

Balance

Balance Phone

Snjallsími sem hjálpar þér að endurheimta fókus, tíma og ró í stafrænum heimi.

Balance Phone er hannaður til að draga úr stafrænum truflunum og hjálpa þér að nýta tæknina á markvissan hátt. Með sérstöku stýrikerfi sem lokar á samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og annað truflandi efni færðu einfaldari og rólegri upplifun sem styður við betri einbeitingu, jafnvægi og heilbrigðari stafrænar venjur.

Balance Phone heldur samt öllum helstu forritunum sem þú þarft í daglegu lífi, eins og skilaboðum, leiðsögn, bankaþjónustu og tónlist. Síminn er snjöll lausn fyrir foreldra sem vilja styðja börn og unglinga í að þróa heilbrigðari stafrænar venjur. Hann hentar líka fullorðnum sem vilja meiri ró og fókus sem og þeim sem vilja takmarka aðgengi að truflandi efni án þess að fórna kostum nútímatækni.

Balance Phone er Samsung Galaxy A17 LTE 128GB með Balance OS stýrikerfi.

Vöruupplýsingablað
54.990 kr 49.491 kr

Balance

Balance Phone Pro

Snjallsími sem hjálpar þér að endurheimta fókus, tíma og ró í stafrænum heimi.

Balance Phone Pro er hannaður til að draga úr stafrænum truflunum og hjálpa þér að nýta tæknina á markvissan hátt. Með sérstöku stýrikerfi sem lokar á samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og annað truflandi efni færðu einfaldari og rólegri upplifun sem styður við betri einbeitingu, jafnvægi og heilbrigðari stafrænar venjur.

Balance Phone Pro heldur samt öllum helstu forritunum sem þú þarft í daglegu lífi, eins og skilaboðum, leiðsögn, bankaþjónustu og tónlist. Síminn er snjöll lausn fyrir foreldra sem vilja styðja börn og unglinga í að þróa heilbrigðari stafrænar venjur. Hann hentar líka fullorðnum sem vilja meiri ró og fókus sem og þeim sem vilja takmarka aðgengi að truflandi efni án þess að fórna kostum nútímatækni.

Balance Phone Pro er Samsung Galaxy S25 128GB með Balance OS stýrikerfi.

Vöruupplýsingablað
159.990 kr 143.991 kr

Samsung

Galaxy Buds 3

Endurbætt hönnun sem skilar betri hljómgæðum og færast varla úr stað sama hvað dagurinn ber í skauti sér. Noise canceling tækni, gervigreind og allt að 30 tíma rafhlöðuending.
26.990 kr frá 21.592 kr

Samsung

Galaxy Buds 4

Galaxy Buds 4 - frábær heyrnatól sem endast lengi.

Galaxy Buds 4 eru þráðlaus heyrnartól og þau nýjustu úr smiðju Samsung. Endurbætt hönnun sem veita betri hljómgæði með ANC hljóðeinangrun. Hnökralaus pörun, gervigreindareiginleikar og allt að 30 tíma rafhlöðuending.
34.990 kr frá 27.992 kr

Samsung

Galaxy S26 Ultra

Samsung Galaxy S26 Ultra – fullkomið flaggskip; óviðjafnanleg myndavél, hámarks afköst og Galaxy AI sem ýtir mörkunum lengra en nokkru sinni fyrr.

Galaxy S26 Ultra er einn sá allra flottasti úr smiðju Samsung. Sannkallaður gervigreindarsími með enn betri ljósmyndun og myndbandsupptöku. Fjórar mismunandi stillingar á skjásíu gera þér kleift að vera í símanum án þess að nokkur gægist á skjáinn. Síminn státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem er engri lík.


Tvöfaldaðu geymslurýmið á einstöku tilboði. Fáðu Galaxy S26 Ultra 512GB útgáfuna á sama verði og 256GB.
Tilboðið gildir tímabilið 28. ágúst - 24. september 2026.
Verð á Galaxy S26 Ultra 512GB eftir tilboð er 279.990,-


Vöruupplýsingablað
frá 254.990 kr
  • +

Samsung

Galaxy S26+

Samsung Galaxy S26+ – meira skjápláss, meiri kraftur og Galaxy AI sem færir upplifunina á stærra svið.

Galaxy S26+ er nýja undrið frá Samsung. Glæsilegur gervigreindarsími með enn betri myndavél. Síminn státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem er engri lík.


Tvöfaldaðu geymslurýmið á einstöku tilboði. Fáðu Galaxy S26+ 512GB útgáfuna á sama verði og 256GB.
Tilboðið gildir tímabilið 28. ágúst - 24. september 2026.
Verð á Galaxy S26+ 512GB eftir tilboð er 244.990,-


Vöruupplýsingablað
frá 214.990 kr
  • +

Samsung

Galaxy Tab A9+ 11" WiFi 128GB Graphite

Samsung Galaxy Tab A9+ býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þú þarft í þitt daglega líf. Hvort sem það er í vinnu, starfi eða einfaldlega til að leika þér. Spjaldtölvan er búin fallegum og björtum skjá, stórri rafhlöðu, öflugum örgjörva og Samsung Kids.

Vöruupplýsingablað
49.990 kr 29.994 kr

Samsung

Galaxy Watch 5 Pro LTE 45mm Grátt

Galaxy Watch 5 Pro – Harðgert, endingargott og tilbúið í krefjandi dag.

Samsung Galaxy Watch 5 Pro er hannað fyrir þá sem vilja hámarks endingu og áreiðanleika í hverju skrefi. Harðgerð og vönduð hönnun gerir úrið fullkomið fyrir æfingar, útivist og annasama daga, á meðan öflugar heilsu- og líkamsræktarmælingar hjálpa þér að fylgjast náið með framförum. Nákvæm GPS staðsetning, löng rafhlöðuending og snjallar tilkynningar tryggja að þú sért alltaf tengdur og í takt við markmiðin þín. Galaxy Watch 5 Pro er traustur félagi fyrir þá sem ætla sér meira.
44.990 kr 26.994 kr
Ertu klár fyrir haustið? – Vefverslun Símans