Ertu klár fyrir haustið?

Komdu þér í gírinn fyrir haustið. Afslættir af völdum vörum og Skemmtikort fylgir með á meðan birgðir endast. Allt sem þú þarft fyrir skólann, vinnu eða kósý daga heima.

Sía
Sía
Sía vörur
Loka
  • Svartur
  • Grænn
  • Blár
  • Hvítur
  • Silfur
  • Fjólublár
  • Rauður
  • Hvít
  • Svört
  • Kremlitaður
  • Svört/Gyllt
  • Grafít
  • Titanium
  • Brúnn
  • Gulur
  • Ljósbleikur
  • Dökkblár
  • Gull
  • Kopar
  • Rósagylltur
  • Gylltur
  • Grænt
  • Títaníum Grátt
  • Ljósblár
  • Títaníum Hvítt
  • Títaníum Silfur
  • Títaníum Blátt
Raða vörum eftir

Polar

Loop Gen2

Betri svefn. Snjallari endurheimt. Meiri hreyfing, án truflana.

POLAR Loop er einfalt, snjallt hreyfiarmband án skjás og áskriftar, hannað til að hjálpa þér að móta heilbrigðari venjur og bæta líðan, áreynslulaust.
Með 24/7 mælingum á hjartslætti, svefni og daglegri virkni færðu gagnlegar upplýsingar sem stuðla að betri heilsu, meiri hreyfingu og aukna frammistöðu, án óþarfa flækju eða yfirþyrmandi gagnaupplýsinga.
Loop skynjar og skráir æfingar sjálfkrafa, engin handvirk ræsing nauðsynleg. Vistar æfinguna og samstillir við Flow appið. Tryggir að engin æfing gleymist.
29.990 kr frá 22.493 kr

Apple

MacBook Neo

Einstök litadýrð með MacBook Neo. Fjórir glæsilegir litir. Ein endingargóð hönnun.

MacBook Neo er létt og sterk tölva sem fylgir þér í skóla, vinnu og allt þar á milli. Þú færð allt að 16 klst. rafhlöðuendingu, bjartan 13" Liquid Retina skjá og öfluga A18 Pro-flögu sem heldur öllu gangandi – hvort sem þú ert að læra, vinna skapa eða slaka á.

256GB er með Magic lyklaborði
512GB er með Magic lyklaborði með Touch ID
frá 119.990 kr

Redmi

Note 15 5G

Öflugur 5G snjallsími með stórum og skýrum skjá og endingargóðri rafhlöðu sem gerir daglega notkun einfaldari og skilvirkari.

Note 15 5G 6+128GB er öflugur snjallsími sem sameinar hraða, nútímalega hönnun og áreiðanlega frammistöðu fyrir daglega notkun. Hann styður 5G tengingu, er með öflugan örgjörva sem tryggir lipra notkun í öppum og leikjum og býður upp á stóran og bjartan skjá sem gerir upplifunina einstaklega mjúka og skýra.
Myndavélakerfið skilar skörpum og nákvæmum myndum við mismunandi aðstæður, Note 15 er með 5.520 mAh rafhlöðu með 45W hraðhleðslu og hann er með IP66 vottun fyrir ryk- og vatnsþol. Með góðu geymsluplássi, góðu vinnsluminni og nýjustu tengimöguleikum er þetta traustur valkostur fyrir þá sem vilja háþróaða tækni og mikið virði í einum og sama símanum.

Vöruupplýsingablað
54.990 kr frá 46.742 kr

Redmi

Note 15 Pro 5G

Háþróaður 5G snjallsími með enn öflugri frammistöðu, betri myndavél og skýrari skjá sem skilar framúrskarandi upplifun fyrir krefjandi notkun.

Redmi Note 15 Pro 5G 8+256GB er kraftmikill snjallsími sem sameinar hraða 5G tengingu, öfluga frammistöðu og skýran skjá með mjúkri upplifun fyrir daglega notkun. Hann er hannaður til að takast á við bæði afþreyingu og krefjandi verkefni af öryggi og lipurð. Myndavélin skilar skörpum og nákvæmum myndum á meðan rafhlaðan með hraðhleðslu tryggir að þú haldir dampi lengur. Traustur valkostur fyrir þá sem vilja meira afl og betri upplifun í hverju smáatriði.

Vöruupplýsingablað
79.990 kr frá 67.991 kr

Redmi

Note 15 Pro+ 5G

Öflugur 5G snjallsími með framúrskarandi myndavél og hraðhleðslu sem skilar úrvals notendaupplifun.

Redmi Note 15 Pro+ 5G 8+256GB er snjallsími sem sameinar toppafköst, fágaða hönnun og einstaklega vandaðan skjá sem skilar skýrri og flæðandi upplifun í hverju smáatriði. Hann styður 5G tengingu og er hannaður fyrir þá sem gera miklar kröfur um hraða, afköst og áreiðanleika í bæði vinnu og afþreyingu.
Öflugt myndavélakerfi skilar ríkum litum og mikilli nákvæmni á meðan rafhlaða með hraðhleðslu tryggir að þú sért fljótur aftur í gang. Með góðu geymsluplássi og framúrskarandi vinnsluminni er þetta valkostur fyrir þá sem vilja það allra besta í snjallsíma.

Vöruupplýsingablað
89.990 kr frá 76.492 kr

Bose

QC Headphones

Bose QC heyrnartólin taka við af Bose QC45 heyrnartólunum sem svo mörg þekkja og elska. Heyrnartólin er búin einstökum hljómgæðum ásamt því að vera með frábæra hljóðeinangrunartækni sem þú getur stillt eftir þínum þörfum, þessi tækni útilokar öll umhverfishljóð svo þú getur notið þess að hlusta án þess að umhverfið þitt sé að trufla þig. Heyrnartólin endast í allt að 24 klukkustundir og tengjast við Bose Music appið þar sem þú getur stillt heyrnartólin eftir því hvernig þú vilt hlusta!
44.990 kr frá 35.992 kr

Bose

QC Ultra Earbuds Gen2

Bose QC Ultra Earbuds eru bestu heyrnartappar sem Bose hafa framleitt til þessa, Nú 2. kynslóð. Ný tegund noise cancellation tækni er betri en nokkru sinni. Óviðjafnanleg hljómgæði án truflunar umhverfishljóða.

Upplifðu úrvals hljómgæði með bestu in-ear hljóðeinangruninni frá Bose og fullkomlega hnökralausa notkun, hönnuð til að hver einasta hlustun verði einstök.
ActiveSense tæknin bætir hljóðeinangrunina enn frekar og dregur úr hávaðatoppum í Aware Mode, þannig að þú heyrir bara það sem skiptir máli: tónlistina.
Skýr og skörp símtöl – með gervigreind sem útilokar bakgrunnshljóð og einbeitir sér að röddinni þinni. Þú getur tekið símtöl með báðum eyrnatólum – eða bara öðru.
43.990 kr frá 37.392 kr

Apple

Watch SE (Gen.2) LTE

Apple Watch SE (Gen 2) LTE – Einfalt og hagkvæmt snjallúr.

Apple Watch SE (Gen 2) LTE er frábært snjallúr fyrir þá sem vilja Apple upplifunina á einfaldan og hagkvæman hátt, með auknu frelsi með LTE tengingu. Þú getur hringt, sent skilaboð og fengið tilkynningar án þess að hafa símann með þér á meðan úrið fylgist með hreyfingu, svefni og daglegri virkni.
Úrið er létt, þægilegt og hannað fyrir daglegt líf, snjallt val fyrir alla sem vilja vera tengdir og á hreyfingu.
54.990 kr frá 32.994 kr

Apple

Watch Series 9 45mm LTE - Stál

Apple Watch 9 LTE stál – Premium stálhönnun og öflug tækni

Apple Watch Series 9 er fullkomið fyrir þá sem vilja premium útlit og afkastamikla tækni í einu og sama úri. Stálhönnunin gefur úrinu glæsilegt og vandað yfirbragð, á meðan LTE tenging tryggir að þú sért alltaf tengdur án þess að þurfa símann með þér. Með öflugum heilsu- og æfingaeiginleikum, skýrum skjá og hröðum örgjörva er þetta úr sem hentar bæði í vinnu, frítíma og æfingar.
89.990 kr 53.994 kr
Ertu klár fyrir haustið? – Vefverslun Símans