Sautjándi Símans!

Sautjándi Símans hátíðin er hafin! Kíktu á úrvalið og kláraðu jólagjafakaupin snemma.

Sía
Sía
Sía vörur
Loka
Min: 1.489 kr Max: 349.990 kr
ISK1489 ISK349990
Raða vörum eftir

Apple

Airpods Max 2

Airpods Max 2 - Ný kynslóð af frábærum heyrnartólum.

Ný kynslóð af Airpods Max sem skilar einstaklega nákvæmu og kraftmiklu hljóði þar sem hver nóta fær að njóta sín, með dýpri bassa, náttúrulegri raddblöndu og breiðara hljóðsviði en áður. Snjallar aðgerðir eins og Adaptive Audio laga sjálfkrafa hljóð og noise cancellation að umhverfinu, á meðan Transparency og Conversation Awareness gera þér kleift að eiga eðlileg samskipti án þess að taka heyrnartólin af þér. Með Live Translation verður auðveldara en nokkru sinni að tala við fólk á mismunandi tungumálum og persónuleg hljóðstilling tryggir fullkomna upplifun hvar sem þú ert, hvort sem þú ert að hlusta, horfa eða spila.
99.990 kr
  • +

Apple

Airpods Pro 3

Apple AirPods Pro (3. Gen)

Hljóðupplifun í hæsta gæðaflokki með Apple AirPods Pro (3. Gen). Öflug tækni og fáguð hönnun sameinast í heyrnartólum sem veita frábæra upplifun.
Framúrskarandi hljóðgæði
Ný og endurbætt hljóðtækni skilar dýpri bassa, skýrari miðtónum og tærari hátónum. Hvort sem þú ert að hlusta á tónlist, hlaðvörp eða taka símtöl færðu skýra og kraftmikla upplifun með Airpods Pro 3.
Virk hljóðdeyfing (Active Noise Cancellation)
Lokaðu úti utanaðkomandi hljóð og einbeittu þér að því sem skiptir máli. Fullkomið fyrir ferðalög, í vinnu eða þegar þú vilt einfaldlega njóta tónlistarinnar í friði.
Transparency Mode
Þegar þú þarft að heyra í umhverfinu skiptirðu auðveldlega yfir í Transparency Mode sem hleypir ytri hljóðum inn – án þess að taka heyrnartólin úr.
44.990 kr

    Balance

    Balance Phone

    Snjallsími sem hjálpar þér að endurheimta fókus, tíma og ró í stafrænum heimi.

    Balance Phone er hannaður til að draga úr stafrænum truflunum og hjálpa þér að nýta tæknina á markvissan hátt. Með sérstöku stýrikerfi sem lokar á samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og annað truflandi efni færðu einfaldari og rólegri upplifun sem styður við betri einbeitingu, jafnvægi og heilbrigðari stafrænar venjur.

    Balance Phone heldur samt öllum helstu forritunum sem þú þarft í daglegu lífi, eins og skilaboðum, leiðsögn, bankaþjónustu og tónlist. Síminn er snjöll lausn fyrir foreldra sem vilja styðja börn og unglinga í að þróa heilbrigðari stafrænar venjur. Hann hentar líka fullorðnum sem vilja meiri ró og fókus sem og þeim sem vilja takmarka aðgengi að truflandi efni án þess að fórna kostum nútímatækni.

    Balance Phone er Samsung Galaxy A17 LTE 128GB með Balance OS stýrikerfi.

    Vöruupplýsingablað
    54.990 kr

      Balance

      Balance Phone Pro

      Snjallsími sem hjálpar þér að endurheimta fókus, tíma og ró í stafrænum heimi.

      Balance Phone Pro er hannaður til að draga úr stafrænum truflunum og hjálpa þér að nýta tæknina á markvissan hátt. Með sérstöku stýrikerfi sem lokar á samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og annað truflandi efni færðu einfaldari og rólegri upplifun sem styður við betri einbeitingu, jafnvægi og heilbrigðari stafrænar venjur.

      Balance Phone Pro heldur samt öllum helstu forritunum sem þú þarft í daglegu lífi, eins og skilaboðum, leiðsögn, bankaþjónustu og tónlist. Síminn er snjöll lausn fyrir foreldra sem vilja styðja börn og unglinga í að þróa heilbrigðari stafrænar venjur. Hann hentar líka fullorðnum sem vilja meiri ró og fókus sem og þeim sem vilja takmarka aðgengi að truflandi efni án þess að fórna kostum nútímatækni.

      Balance Phone Pro er Samsung Galaxy S25 128GB með Balance OS stýrikerfi.

      Vöruupplýsingablað
      159.990 kr

        RIO Studio RGB ljósahringur

        Fáðu frábæra lýsingu fyrir myndir og myndbönd með fjölbreyttum litastillingum, stillanlegri birtu og þægilegri hönnun.

        Fáðu frábæra lýsingu fyrir myndir, myndbönd og efnisgerð með glæsilegum 12 (30cm) tommu LED ljósahring sem færir upptökurnar þínar á næsta stig. Með yfir 50 litastillingum, þremur náttúrulegum ljósstillingum og stillanlegum birtustyrk geturðu auðveldlega skapað réttu stemninguna fyrir hvert tilefni.
        Hvort sem þú ert að taka upp myndbönd, búa til efni fyrir samfélagsmiðla eða taka fallegar ljósmyndir færðu jafna og fallega lýsingu sem skilar faglegri útkomu. Létt og meðfærileg hönnun ásamt hæðarstillanlegum þrífæti gerir þér kleift að nota ljósið nánast hvar sem er, hámarkshæð á ljósinu er 164cm. Meðfylgjandi símahaldari er snúanlegur í 360 gráður og fjarstýring gerir allar stillingar einfaldar og þægilegar. Einnig fylgir lítill borðþrífótur sem nýtist við upptökur á ferðinni.
        Frábær lausn fyrir alla sem vilja skapa vandað og eftirtektarvert myndefni á einfaldan hátt.
        12.990 kr

          Soundboks

          Soundboks Rider

          Soundboks Rider -Öflugur hátalari sem færir þér frelsi til að taka stemninguna með hvert sem er.

          Öflugur og meðfærilegur Bluetooth-hátalari sem skilar allt að 118 dB hljóðstyrk og er hannaður fyrir ævintýri, ferðalög og góðar stundir hvar sem er. Sterkbyggð IP66 hönnun þolir krefjandi aðstæður og hátalarinn er einungis 6,5 kg að þyngd og hefur innbyggt handfang sem gerir það auðvelt að taka hátalarann með sér.
          Útskiptanleg rafhlaða býður upp á allt að 35 klukkustunda spilun við miðlungs hljóðstyrk og allt að 8 klukkustundir á hámarksstyrk. Með Soundboks appinu geturðu sérsniðið hljóminn, stillt EQ og valið hljóðsnið eftir aðstæðum. Bluetooth-tenging og 3,5 mm AUX-inntak gefa fjölbreytta tengimöguleika svo þú getur einfaldlega tengt, ýtt á play og komið stemningunni af stað.

          Stærð: 35 × 24 × 20 cm.

          Hleðslutæki fylgir ekki með (USB-C)
          99.990 kr

            Denver

            10" Stafrænn myndarammi PFF-1024

            Deildu dýrmætum minningum með fjölskyldu og vinum á einfaldan hátt og njóttu uppáhaldsmyndanna þinna á fallegum stafrænum myndaramma.

            Haltu dýrmætum minningum lifandi og deildu fallegum augnablikum með fjölskyldu og vinum á einfaldan og skemmtilegan hátt. Glæsilegur 10,1 tommu stafrænn myndarammi með skýrum IPS snertiskjá sýnir uppáhaldsmyndirnar þínar í fallegum litum. Með Wi-Fi tengingu og ókeypis Frameo appinu geta fjölskylda og vinir sent myndir og myndbönd beint í rammann, hvar sem þau eru stödd. Innbyggt 16 GB geymslurými veitir gott pláss fyrir minningarnar og innbyggður hátalari gerir þér kleift að njóta myndbanda með hljóði.
            Einföld og þægileg notkun gerir myndarammann að frábærri viðbót við heimilið eða fallegri gjöf fyrir ástvini. Með fjölbreyttum eiginleikum eins og dagatali, klukku, veðurupplýsingum og myndaalbúmum geturðu sérsniðið upplifunina að þínum þörfum.
            Fullkomin leið til að varðveita góðar minningar og njóta þeirra á hverjum degi.
            frá 14.990 kr

            Denver

            10" Stafrænn Myndarammi PFF-1063

            Stafrænn myndarammi frá Denver sem býður upp á meiri sveigjanleika. Þú stjórnar hvaða minningar þú sýnir á þínu heimili hverju sinni.

            10" ramminn frá Denver keyrir á Frameo hugbúnaðinum sem gerir þér auðvelt fyrir að senda myndir á rammann.
            Auðvelt er sem dæmi að senda mynd á marga ramma í einu, svo ömmur og afar geta fengið nýja mynd í rammann án þess að þú sért í heimsókn.
            17.990 kr

            Denver

            10" Stafrænn Myndarammi Viðar rammi PFF-1044

            Haltu dýrmætum minningum lifandi og deildu fallegum augnablikum með fjölskyldu og vinum, hvar sem þau eru stödd

            Glæsilegur stafrænn myndarammi sem heldur dýrmætum minningum lifandi og færir fjölskyldu og vini nær hvort öðru. Með skýrum 10,1 tommu IPS snertiskjá og fallegri litabirtingu njóta uppáhaldsmyndirnar þínar sín til fulls. Innbyggt Wi-Fi og FRAMEO smáforritið gera þér og þínum nánustu kleift að senda myndir og myndskeið beint úr símanum í rammann, hvar sem þið eruð stödd.
            Frábær leið til að deila skemmtilegum augnablikum.

            Myndaramminn er einfaldur í notkun og býður upp á 16 GB innbyggt geymslurými ásamt möguleika á að bæta við MicroSD minniskorti allt að 64 GB. Snertiskjárinn auðveldar alla stjórnun og snjallir eiginleikar á borð við sjálfvirkan myndsnúning og svefnstillingu tryggja þægilega notkun. Ljós eða dökk viðaráferð gefur rammanum hlýlegt og stílhreint yfirbragð sem passar fallega inn á hvert heimili.

            Tilvalin gjöf fyrir fjölskyldu og vini sem vilja njóta góðra minninga á hverjum degi.
            17.990 kr
            Sautjándi Símans! – Vefverslun Símans