Upplifðu kraftmikinn hljóðheim með Soundcore Boom2, með djúpum og öflugum bassa, skýrum miðjum og tærum hæðum færðu tónlistina þína til að lifna við, hvort sem þú ert á ferðinni, í útileigu eða heima.
Hi-Res hljóð á ferðinni og IPX7 veðurvarinn svo fjörið stoppar ekki í rigningu. SmartTune tækni sem tryggir bestu hljómgæði sem völ er á í hvaða stellingu sem er. Með öflugum 50W bassa og 2x15w hátalara í hendi sem endist í allt að 24 tíma í gangi. Flýtur í vatni og getur hlaðið önnur USB tæki
Harðgerður og fjölhæfur, Boom 3i býður upp á afburða hljóm ásamt því að vera sterk byggður fyrir útivist, vatnslífið og alla þá sem vilja taka tónlistina með sér, hvert sem er.
Byltingarkennd fljótandi spilun: Hátalarinn helst uppréttur og spilar skýran hljóm, jafnvel í öldum. Engin brenglun, bara hávær og tær hljóðupplifun hvar sem er. IP68 vatnsheld og rykheld hönnun: Þessi Bluetooth-hátalari er hannaður til að þola náttúruöflin, fullkomlega vatnsheldur og rykheldur, sama hvert ferðalagið leiðir þig. 5x meiri saltvatnsþol og einstök ending: Boom 3i er fimm sinnum saltvatnsþolnari en sambærilegir hátalarar, vernd gegn sjó, svita og úða. Kemur í veg fyrir ryð og tæringu. Tvöfaldur bassi með BassUp 2.0: Njóttu 50W af öflugum hljómi með djúpum bassa niður í 56 Hz. BassUp 2.0 og DSP tækni skila kraftmiklum dýptum og skýrum hæðum í þéttum ferðahátalara. Snjall virkni og 16 klst. spilunartími: Með raddstyrkingu, neyðarviðvörun, Buzz Clean og festanlegri ól fyrir handfrjálsa skemmtun. Fáðu allt að 16 klst. samfellda spilun og fulla stjórn með Soundcore appinu.
BPS-250 Partý hátalarinn frá Denver er með 8" Woofer og Led ljósum.
Hátalarinn tengist með Bluetooth en hann hefur einnig USB tengi og rauf fyrir MicroSD, einnig er hann með tengi fyrir hljóðnema og AUX. Hátalarinn er með 400W Max krafti, djúpum bassa og hreinum toppum, 8" Woofer og 1.5" Tweeter. Ljósin á hátalaranum samstilla sig við tónlistina. TWS stilling sem gerir þér kleift að para saman tvo hátalara. 3600mAh rafhlaða sér til þess að hátalarinn lifi partíið.
Fangaðu augnablikið hvar og hvenær sem er með Nilox Carry Cam. Myndavélin er búin 200mAh rafhlöðu sem endist í allt að 75 mínútur af töku tíma. Einstaklega lítil og nett, Mini er aðeins 48x19x29mm á stærð og 18gr á þyngd, passar auðveldlega á lyklakippu. Hún styður AVI myndbandsform með upp í 720p á 30fps upplausn og HD hljóðupptöku. Myndavélin tekur líka myndir og með innbyggða retro filtera til að gefa myndunum þínum allskonar stemningu.
Prentaðu uppáhalds augnablikin þín hratt, auðveldlega og þráðlaust.
Fyrirferðarlítill og þægilegur prentari sem gerir þér kleift að prenta myndir, límmiða, segla og fleira á einfaldan hátt hvar sem er. Bluetooth 5.2 tenging tryggir hraða og stöðuga tengingu við snjallsímann þinn á meðan Labelnize appið fyrir iOS og Android gerir ferlið einstaklega einfalt og notendavænt. Prentarinn skilar skörpum og góðum prentgæðum með 600 dpi upplausn og styður fjölbreyttar pappírsgerðir, þar á meðal ljósmyndapappír, límmiðapappír, segulpappír, fatapappír og tattoo pappír. Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða gerir þér kleift að prenta allt að 40 myndir á einni hleðslu, sem gerir prentarann fullkominn til að taka með sér hvert sem er.
Fylgir með í kassanum: Denver 6010 prentari USB-A í USB-C hleðslusnúra 1x prenthylki, 20stk pappír (4x venjulegur pappír, 4x límmiðapappír, 4x fatapappír, 4x segulpappír og 4x tattoo pappír)
Stílhreinn og öflugur 5G snjallsími sem sameinar lipra frammistöðu, skýran skjá og snjalla eiginleika fyrir nútímalegt líf.
Fáðu meira út úr snjallsímanotkuninni með tæki sem leggur áherslu á jafnvægi milli afkasta, hönnunar og þæginda. Öflugur skjár gerir efnið skýrara og skemmtilegra á meðan að góð rafhlaða og hröð 5G tenging halda þér gangandi án truflana. Háþróuð myndavél og snjallar lausnir gera þér kleift að fanga og deila augnablikum á einfaldan og stílhreinan hátt.
Þegar þú kaupir Samsung Galaxy A37 þá færðu Samsung Galaxy Buds4 með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is . Tilboðið gildir frá 12. október til 31. desember 2026.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Öflugur 5G snjallsími með skýrum skjá, langri rafhlöðuendingu og frábærri frammistöðu fyrir daglega notkun.
Fáðu góða upplifun með snjallsíma sem sameinar hraða, glæsilega hönnun og snjalla eiginleika í daglegri notkun. Skýr skjár, öflug rafhlaða og 5G tenging halda þér tengdum allan daginn á meðan fjölhæf myndavél fangar augnablikin með nákvæmni og skýrleika, fullkominn félagi fyrir vinnu, afþreyingu og allt þar á milli.
Þegar þú kaupir Samsung Galaxy A57 þá færðu Samsung Galaxy Buds4 með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is . Tilboðið gildir frá 12. október til 31. desember 2026.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Galaxy S25 FE, Flaggskips eiginleikar á hagstæðu verði!
S25 FE Státar af stílhreinni hönnun, með 6,7" Dynamic AMOLED 2x skjá sem hefur 120 Hz endurnýjunartíðni, öflugum örgjörva, 4900 mAh rafhlöðu og þremur myndavélum.